Gleðilega hátíð
Kæru vinir,
ég var frekar löt í jólakortunum í ár (eins og í blogginu) svo ég vil nota tækifærið og óska ykkur gleðilegra jóla og um leið þakka lesturinn og stundirnar á líðandi ári.
Sjáum svo bara til með það hvort ég haldi áfram með þessa síðu árið 2009.
Skál!!
Jólakveðja
Sigurbjörg
Tvö í þessum mánuði
Spörning um að ná öðru bloggi áður en mánuðurinn klárast.
Skil ekkert afhverju fólk getur ekki séð síðustu kommentin, bloggar hefur eitthvað verið að breyta til hérna svo það gæti verið þess vegna, eða þá að ég þarf að breyta einhverju.
Þið haldið bara áfram að kommenta og ekki orð um það meir.
Allt voða svipað og síðast þegar ég lét mitt ljós skína hérna. Fór reyndar á Akureyrina í lotu í skólanum.
Ekkert til frásögu úr þeirri ferð þar sem djammið var svo leiðinlegt að ég hef ekki smakkað það síðan......
á föstudaginn 
Er með námsleiða á hæsta stigi en stefni engu að síður á að dúxa í jólaprófunum.
Ég er líka með Íslandsleiða á hæsta stigi og langar rosalega að koma mér úr landi, skil reyndar ekki afhverju þar sem allt er í blóma á klakanum og endalaus stemmning í Bolungarvík.
Jæja má ekkert vera að þessu, þarf að vinna.
Sigurbjörg
p.s. þessu áttuði ekki von á 
Hérna kemur færslan lömbin mín..
Veit ekki hvort því trúið því en ég var búin að skrifa rosa færslu hérna á mánudaginn og svo reif ég tölvuna úr sambandi. Jájá hundurinn át ritgerðina mína, klassa saga ég veit.
Ég er samt alveg að segja satt. Varð svolítið pirruð þegar ég áttaði mig á stöðu mála, enda var þetta vinnutölvan sem um er rætt svo það var ekki bara bloggið sem glataðist, ég var að hugsa um að skrifa þá bara, “ég er hætt að blogga”.
Þar sem aðdáendur eru að truflast á pöllunum þá hef ég ákveðið að tjá mig aðeins.
------ Hérna er fínt að frétta, er búin að kúka upp á hnakka í skólanum og er rétt að ná að skeina herðarblöðin þessa dagana.
------ Veturinn er farin að láta á sér bera og snjógallinn var tekinn fram í gær.
------ Við Mæsa höfum aldeilis verið duglegar að “Draga Dóra Draum á Djammið” (leisis hratt) síðustu vikur, eða bara mánuði.
------ Akureyrin verður sótt heim á miðvikudaginn í næstu viku, lota í skólanum og ætla ég að reyna að skeina restina af bakinu í þeirri ferð.
------ Facebook tímaþjófur er ástæða þess að ég hef ekki hent fram bloggi, algjör misskilningur að það sé vegna lærdóms ef einhverjir eru að velta því fyrir sér.
------ Myndir hafa verið settar inn á Facebook en fyrir þá sem ekki hafa aðgang að því þá mun ég setja þær hérna á picasa.
------ Þegar ég nenni.
------ Golfmótið sem um var skrifað í síðustu færslu gekk framar öllum vonum og stefnan er sett á atvinnumennskuna næsta vor.
Eru ekki allir sáttir núna?
Ég lofa annari færslu fyrir jól J
Uni. Akureyri
Ætli ég verði ekki að blogga fyrst ég fékk svona mörg komment við síðustu færslu.
Sumarið er víst búið og haustið gengið í garð, þá er loftið úti svo ferskt og gott. Elska haustlykt.
Ég brunaði norður í síðustu viku, fór á miðvikudaginn og heim aftur á föstudag. Þurfti að ná eins og einu matarboði og djammi hérna heima á föstudeginum. Keyrði heldur greitt og er einni framrúðu fátækari og eins og hundraðkalli sem fór í annað.![]()
Ferðin var samt alveg frábær, gisti í sveitinni hjá Steina og eyddi fimmtudeginum á Húsavík með ömmu og fór í kaffi til Sylvíu og Kristjáns. Hitti í fyrsta sinn litla gullmolann þeirra hann Aron Bjarka, algjört rassgat.
Fór snemma á föstudeginum til Akureyrar í skólann, var þar alveg eins og asni með enga tölvu (sem bilaði) og ekki einu sinni penna og blað. Allir voða skipulagðir nema Sigurbjörg, hún var bara ekki búin að átta sig á álvöru málsins.
Ég brunaði síðan heim eftir að hafa komið við í Pennanum og verslað skólabækur, það var lítið stoppað á leiðinni, hljóp inn í Staðarskála til að pissa. Mátti engann tíma missa![]()
Ég er ekki ennþá búin að ná því að ég sé að byrja í skóla, veit ekkert hvernig ég á að skipuleggja mig. En það kemst vonandi einhver rútína á þetta. Vonandi fyrir jól. hehe
Í kvöld er svo mitt fyrsta alvöru golfmót, ég á örugglega eftir að gera mig að algjöru fífli þarna en það verður bara að hafa það. Einhvertíman er allt fyrst, eins og maðurinn sagði.
Auglýsi hér með eftir caddy...
Hef ekkert meira að segja ykkur,
Sigurbjörg
Brúðkaupssumarið 2008
Æðislegt sumar- margt búið að gerast.
Það sem stendur uppúr eru 3 æðisleg brúðkaup hjá frábæru fólki og öll voru þau mjög ólík.
07.06.08 - Eygló og Jón
26.07.08 - Eva og Toni
09.08.08 - Magnús Már og Jóhanna
Til hamingju öll og takk kærlega fyrir mig!
Eygló og Jón giftu sig í Ólafsvík og buðu til veislu í félagsheimilinu þar, Eva og Toni buðu í grillveislu og giftu sig óvænt í víkinni fögru. Ég fékk þann æðislega heiður að vera svaramaður. Magnús Már og Jóhanna giftu sig einnig í Víkinni fögru um síðustu helgi og blésu til heljar veislu sem endaði snemma á sunnudegi hef ég heyrt.
Það er auðvitað margt annað sem hefur gerst, ball með Ný Dönsk, verslunarmannahelgin, ball með Eurobandinu og fleira og fleira.
Nú er fer að koma haust og ég fer að byrja í skólanum. Fer norður á þriðjudag/miðvikudag í næstu viku að kíkja á aðstæður. Ég fer auðvitað í sveitina líka og renni jafnvel á Húsavík-city.
Ég ætla svo að slútta sumrinu í RVK 30-31. ágúst ef einhver ætlar að vera memm.
og já það eru komnar inn myndir ---------------------------------->
------------------------------------------------>
Bara að nefna það.....
Myndirnar komnar inn, ekki margar sem voru teknar en einhverjar þó![]()
Njótið, ég nenni ekki að blogga fyrir ykkur núna.
Síðar......
Færsla sumarsins...
Það er nóg að gera við að hanga úti eða reyna að hrista af sér spikið. Eftir að hafa hangið inni allann daginn í vinnunni reyni ég sem minnst að sitja við tölvuna þegar ég kem heim.
Málið er því bara að blogga í vinnunni á meðan það er rólegt.
Nóg er búið að vera að gera, búin að heimsækja Snæfellssnesið og það var alveg draumur. Fengum flott veður á föstudeginum og fórum í pottinn eftir smá gin&tonic tjaldstæðadjamm. Helga lét okkur taka 6stk lifratöflur sem við skoluðum niður með gininu og vorum við komin á fætur um 7 daginn eftir, 7:30 vorum við farin að leita að bakaríi og 9:00 vorum við mætt í búðina/sjoppuna á Grundarfirði að andast úr hungri.
Við reyndum svo að gera heiðarlega tilraun til að kíkja í búðir svona þegar klukkan var orðin 11 og viti menn, ef það var ekki opið á milli 13 og 14 þá var bara lokað. Ekki morgunhanar á Ólafsvík og Grundarfirði, það er alveg greinilegt.
Brúðkaupið var alveg rosalega flott og fínt og frábær matur. Takk fyrir mig.
Núna er maður svo farin að spila smá golf og reyni að næla mér í delluna, þetta er alveg skrambi skemmtilegt svona þegar maður er farin að slá fleiri góð en slæm högg. Nú er bara mál að æfa sig á fullu.
Ég er að hugsa um að vera löt í blogginu í sumar, þannig að ég er komin í sumarfrí. Ef ég hef eitthvað gríðalega merkilegt að segja skrifa ég línu.
Ég set samt sem áður inn myndir ef ég tek einhverjar og læt þá vita.
Brúðkaupsmyndirnar koma inn um helgina, lofa því.
Góða helgi.
Sigurbjörg
Sumarið er tíminn...
Komst heim eftir vel heppnaða borgarferð, lærði það sem ég fór til að læra og blótaði starfsfólki hótelsins aðeins of oft. Búin að fyrirgefa þeim það núna að nettengingin náð ekki inn í herbergi 239 og að minibarinn var bilaður.
Eftir ágætis dag í útflutningsdeild fór ég beinustu leið í Kringluna og þaðan í Smáralind, þar verslaði ég ekki neitt vegna fitunnar og ljótunnar.
Mjög brjáluð í skapinu rauk ég upp í Holtagarða, ætlaði nú í upphafi aftur upp í Kringlu en tók tvisvar vitlausa beygju og endaði upp á höfða!
Ég ákvað því að játa mig sigraða og fara upp á hótel en mundi þá eftir Holtagörðum og kíkti þangað á íþróttaföt í Útilíf, eina sem hægt er að kaupa fyrir utan skó þegar maður er í þessu skapi. Ég endaði með 1 bol 2 númerum of stór.
Maður getur aðeins misreiknað stærðina á sér í þessu fússi. Ég náði svo að versla aðeins á föstudeginum áður en ég fór í flug.
Eurovisiondjammið var svo bara ekki frásögu færandi.
Bekkjahittingur á morgun! Hlakka til að hitta árganginn, höfum ekki verið með neinn hitting síðan við útskrifuðumst, ég hef nú alveg hitt alla einu sinni eða tvisvar síðan. Nú verður myndavélin tekin með út, hvort hún verður tekin upp úr töskunni er hinsvegar annað mál.
Trek 3700 er komið í hús, verslaði einn svoleiðis grip í vikunni þar sem meggarinn er byrjaður. Ég fann hvað þetta tók í lærin þessa 100 metra sem ég prufukeyrði það í gær, þetta verður eitthvað.
Sumarið er komið!
Rosalega er veðrið búið að vera svakalega gott síðustu daga. Það er komið svona peysuveður. Love it!
Er að fara suður á eftir með flugi, gæti ekki beðið um betra veður fyrir flug. Eins gott að veðrið verði svona gott á föstudaginn þegar ég kem aftur heim. Ég er að fara í smá vinnuferð og verð á Granhótel Reykjavík ef einhver hefur áhuga á að heimsækja mig.
Næstu helgar eru svo þétt skipaðar, Eurovision á laugardaginn, sjómannadagurinn og bekkjahittingur helgina eftir og svo er roadtrip til Ólafsvíkur þar sem ég ætla að skella mér í brúðkaup og í sumarbústað rétt fyrir utan Grundarfjörð.
Sumarið byrjar vel, það er bara alveg greinilegt.
Það er annars bara allt gott að frétta, sárin að gróa vel og í næstu viku má ég fara að fara í ræktina, í sund og bað! Hef samt mátt fara í sturtu svo ekki halda að ég sé úldin.
Þá verð ég með leiðinleg megrunarblogg. VÚHÚ
Jæja þýðir ekki að vera að blogga í vinnunni.
Ji hvað ég er léleg í þessu bloggi....
Og ég er bara en í vinnunni og meira að segja farin að vinna heilann dag og meira en það.![]()
Hvítasunnuhelgin búin og var frekar busy. Föstudagskvöldið fór í smá bjórdrykkju, alveg einn og hálfann held ég og svo upp í rúm að sofa eða dotta þar sem ég átti von á símtali frá lögreglunni og í þau skipti sem ég var að detta í minn djúpa hringdi hún. Málið var að fjölskyldan var að koma vestu í fermingar og Aggi og Hera voru búin að vera heldur lengi á leiðinni svo ég ræsti út björgunarsveitina
Tja, ég ræsti hana kannski ekki út þar sem búið var að því þegar ég hringdi, hljómaði bara betur.
Laugardagurinn fór svo í fermingastúss, út að borða með famelíunni, æskuvinkonuhittinug og endað á Edinborg.
Sunnudagur, mætt í fermingu til Magga kl 11:30 til að aðstoða við undirbúning og veislan byrjaði síðan kl 13:00 þar vorum við þangað til við fórum inn í Hnífsdal klukkan 18:00 þar sem Sigurlaug bauð til veislu.
Djamm tekið um kvöldið, Edinborg varð fyrir valinu og skemmti ég mér bara rosalega vel. Alveg kominn tími á mig, búin að vera frá í alltof langann tíma![]()
Gömlu er farin í sveitina með Eydísi Birtu og ég bara ein í koti, vá hvað það er rólegt eitthvað, búið að vera fullt af fólki í kringum mann alla helgina og svo bara búmm, hverfa allir á sama tíma... Helena og Gunna Dóra björguðu mér frá einmannaleikanum á mánudaginn svo ég er að lifa þetta af.
Helga bingó og börn eru komin á klakann, hlakka svooo mikið til að hitta þau! Velkomin heim, sjáumst vonandi sem fyrst.
