Innskráningar kubbur

Auglýsing

Færsla sumarsins...

20. júní 2008 klukkan 09:43
Ætli það sé ekki best að blogga svo að sumir  verði rólegir.Brosandi

Það er nóg að gera við að hanga úti eða reyna að hrista af sér spikið. Eftir að hafa hangið inni allann daginn í vinnunni reyni ég sem minnst að sitja við tölvuna þegar ég kem heim.
Málið er því bara að blogga í vinnunni á meðan það er rólegt.Saklaus
 

Nóg er búið að vera að gera, búin að heimsækja Snæfellssnesið og það var alveg draumur.  Fengum flott veður á föstudeginum og fórum í pottinn eftir smá gin&tonic tjaldstæðadjamm.  Helga lét okkur taka 6stk lifratöflur sem við skoluðum niður með gininu og vorum við komin á fætur um 7 daginn eftir, 7:30 vorum við farin að leita að bakaríi og 9:00 vorum við mætt í búðina/sjoppuna á Grundarfirði að andast úr hungri. 
 

Við reyndum svo að gera heiðarlega tilraun til að kíkja í búðir svona þegar klukkan var orðin 11 og viti menn, ef það var ekki opið á milli 13 og 14 þá var bara lokað.  Ekki morgunhanar  á Ólafsvík og Grundarfirði, það er alveg greinilegt.

Brúðkaupið var alveg rosalega flott og fínt og frábær matur. Takk fyrir mig.
 

Núna er maður svo farin að spila smá golf og reyni að næla mér í delluna, þetta er alveg skrambi skemmtilegt svona þegar maður er farin að slá fleiri góð en slæm högg.  Nú er bara mál að æfa sig á fullu.
 

Ég er að hugsa um að vera löt í blogginu í sumar, þannig að ég er komin í sumarfrí.  Ef ég hef eitthvað gríðalega merkilegt að segja skrifa ég línu.

Ég set samt sem áður inn myndir ef ég tek einhverjar og læt þá vita.

Brúðkaupsmyndirnar koma inn um helgina, lofa því.

Góða helgi.
Sigurbjörg
 
Helga María
takk fyrir þetta;)
#1
20. júní 2008 klukkan 13:44
 
Gísli And
hvað ertu með í laun ? Hf. Eimskipafélag Íslands Eimskip tapar 101 milljón evra á öðrum ársfjórðungi .BARA SIÐAN ÞÚ BYRJAÐIR. ERU ÞETTA BARA ÞÍN LAUN ? Kve'ja og takk fyrir síðast .
#2
20. júní 2008 klukkan 20:30
hvad eru lifratöflur?? ég kannksi spyr eins og asni...
En alveg lýst mér ekkert á tetta "sumarfrí" sem tú ert ad hugsa um ad taka tér.
Og hvar ertu eiginlega, ég hef ekkert ad gera og ekki nokkur madur á msn...

Hilsen...
#3
21. júní 2008 klukkan 15:55
Lifratöflur, maður á ekki að verða þunnur, var það ekki Helga?? Og var í golfi...
En já Gísli ég er á svakalegum launum, allt að fara á hausinn út af mér, ég kemst þá til Norge í haust og vetur:D Takk fyrir síðast sömuleiðis..
#4
21. júní 2008 klukkan 17:22
 
Helga María
Jú jú enginn þynnka;)
#5
21. júní 2008 klukkan 17:39
Dibba ef tessi mínus er allur í tínum vasa, tá er alveg tegin ekki nema bara ein mill €. Vaeri allveg salla róleg med tad. Hvad er ein milla á milli vina... Eda tú kannksi stingur henni í afmaeliskortid bara;)
#6
22. júní 2008 klukkan 09:05
 
Gísli And
Brúðkaupsmyndirnar koma inn um helgina, lofa því.

Góða helgi.
Sigurbjörg
Sigurbjörg Hallgrímsdóttir
?????????????????? HVAÐA HELGI RTU AÐ TALA UM ?????????????????????????????
#7
02. júlí 2008 klukkan 18:03
 
Sigurbjörg
Heyrðu já einmitt, var ég búin að lofa því.....? Best að lofa þeim þá í kvöld 3.júlí, ekki seinna en 00:00 ;)
LOFA enn og aftur :D
#8
03. júlí 2008 klukkan 13:15

Skrifa athugasemd

Prófíll

  • Nafn: Sigurbjörg Hallgrímsdóttir
  • Netfang: jaseika@hotmail.com
  • Staður: Bolungarvík
  • Heimilisfang: Ljósaland 3
  • Atvinna: Fulltrúi-Eimskip
  • Hjúskaparstaða: ledig
  • Um mig: Ung snót sem er ótrúlega skemmtileg, alls ekkert óþolinmóð eða óákveðin, með króníska munnræpu og mörg golden moment.

Myndirnar mínar