Innskráningar kubbur

Auglýsing

Síðasta kvöldmáltíðin

09. nóvember 2007 klukkan 17:11
Suður á morgun og ég er sko ekki tilbúin, ég bara einhvernvegin nenni ekki að spá í því hverju ég á að pakka niður. Ég er nú reyndar búin að pakka niður slatta en það er sko slatti eftir og taskan orðin vel búttuð, þetta er svona velja og hafna, ég vil ekki viðurkenna að það sem er nú þegar í töskunni er mikið sem ég nota bara ekki neitt, en þið þekkið nú setninguna " Ég nota þetta kannski einhvertíman" "Þegar ég verð mjó" Þar sem við Helga ætlum að massa það í ræktinni í Geilo þá vonast ég til að verða mjóUllandi
Tja ég hef reyndar svoooo oft ætlað að massa það í ræktinni en aldrei orðið mjó eða orðið aftur feit um leið og ég hætti....
Nóg um fitu og best að tala þá um mat....Óákveðinn

Það verður farið á hótelið að borða í kvöld, síðasta máltíðin. Það er famelían og Mæsan mín. Því miður komast ekki fleiri úr vinahópnum sökum veikinda, vinnu og íþróttakeppni.  Pabbi kemst því miður ekki heldur sökum vinnu en þetta verður samt rosa gaman, þau verða bara með okkur í anda.
Ég fer svo suður annað kvöld, ætla að eyða sunnudeginum í að heimsækja vini og vandamenn á höfuðborgasvæðinu.
 

Emil Strákskratti

03. nóvember 2007 klukkan 15:18
Loksins loksins, ég er búin að fá dekkin undir bílinn! Mér sýnist þá á öllu að ég þurfi lítið á þeim að halda, 8 stiga hiti í dag, takk fyrir! 

Mál málanna eða svona næstum því, ég er búin að fá mér kisu eða við Eydís Birta í sameiningu, hún fékk að ráða nafninu og varð Emil Strákskratti fyrir valinu eða næst á eftir Pabbi Ingólfur og Afi Hallgrímur Óli. Ég taldi þá að best væri að leyfa henni bara að halda Emils nafninu. Hann Emil verður svo bara í fóstri hérna í Ljósalandinu á meðan ég er úti.

Ég var annars að vinna í sundlauginni í gær og þar var Íþróttahátíðin í fullum gangi og ég átti í fullu fangi með að þrífa upp þennan sóðaskap!! Þetta var hreinn viðbjóður, þvílík og önnur eins umgengni hjá unglingum nú til dags! Ég á bara ekki til orð! Ég trúi því ekki að þetta hafi verið svona þegar ég var í skólanum. Ég neita að trúa því.

Hef ekki tíma í þetta, suður eftir viku:)


snjór

30. október 2007 klukkan 17:28

Er ekki bara komin vetur í víkinni, ég á sumardekkjunum og vinn á Ísafirði. Glæsilegt.  Það er fyrir lifandis löngu búið að panta dekkin en eitthvað hefur gengið hægt að fá þau vestur á firði. Pirruð!

opið

20. október 2007 klukkan 14:44
Hef ákveðið að opna síðuna mína aftur, bara svona vegna þess að ég er að fara  út í annað ævintýri.  Nú er það ekki Sviss heldur Noregur.  Mig langar samt alveg rosalega mikið að fara aftur til Sviss, er meira að segja búin að athuga með flug frá Osló til Zürich næsta vor. Kannski að ég fari þangað í heimsókn áður en ég kem heim.

Ég er annars farin að telja dagana, er farin að pakka í huganum og er sko alveg til í þetta, samt verðu leiðinlegt að vera ekki heima um jólin.  Það verður nú samt örugglega mikið að gera á hótelinu svo ég finn örugglega ekkert fyrir því að ég er að missa af jólunum heima.
Ég ætla að fljúga út 12. september, Sindri frændi ætlar að fara með mér svo það verður frábært að vera ekki ein, við þurfum nefninlega að dunda okkur í Osló í góða 4 tíma áður en við komumst upp í lest til Geilo, sú lestarferð tekur svo 3 og hálfann tíma. Ég er nú samt orðin vön þessum löngu lestarferðum svo þetta verður ekki neitt.  Finnst miklu betra að hanga í lest heldur en í flugvél, það er hægt að snúa sér við í lestunum.
Þannig að, ef þið farið til Noregs í vetur, látið mig vita.
Svalur

jæja

10. október 2007 klukkan 23:33

Ég er bara alveg hætt að nenna að blogga, svei mér þá.
Ég er allavegana komin heim úr fríinu sem var geggjað gaman.  Var hjá Evu í viku og í Sviss í viku.  Ekkert smá gaman að hitta alla aftur.  Margir voru mjög hissa að sjá mig en auðvitað voru allir mjög ánægðir. 
Brendan var æðiselgur, orðinn svo fullorðinn og algjör prakkari.  Mér leið annars eins og ég hefði aldrei farið frá Sevelen, það hafði lítið sem ekkert breyst, enda svo sem ekki nema tæpir 6 mánuðir síðan ég var þar síðast.

Ég nenni nú varla að segja ykkur allt sem gerðist því það var svo rosalega margt.  Fór t.d. í Tvolí með Evu og Tony, það var rosalegt! Fór næstum því að grenja í einu tækinu og takk fyrir, Eva og Tony fóru aftur!! Nei takk sko, ég gerði ekki hjartanu mínu það, enda hefði það ekki höndlað álagið.

Nú er ég svo komin heim og er að vinna á Hótelinu eða á veitingastaðnum Við Pollinn.  Þetta  verður heldur stutt stopp, bara rétt rúmur mánuður og þá verður en og aftur haldið á keflavíkurflugvöll og í þetta skiptið ætla ég að lenda í Osló, þaðan verður svo farið með lest til Geilo og þar ætla ég að eyða vetrinum.  Ég er að fara að vinna á hóteli sem heitir Dr. Holms.  Vá hvað ég hlakka til!
Þetta er svona það helsta sem er að frétta af mér þessa dagana. Ætli ég komi svo ekki til með að vera betri í blogginu þegar ég er komin til Geilo. Hugsa það..

Sigurbjörg

og aftur....

11. september 2007 klukkan 11:28
Smá breytingar hafa verið gerðar á síðunni.  Bara smá uppfærsla og lagfæringar.

Ég er komin heim úr borginni og mun lenda þar aftur eftir ákkúrat viku!  Svo verður flugið til Frankfurt eftir 8 daga!  Ég er búin að setja tengilið í lestarmálin út í Sviss þar sem ég klúðraði interrail passanum! Skiptir svo sem litlu, spurning um að ég reyni að nota mitfhargelegenheit sem mest svo ég get haldið kostnaðinum í sögulegu lágmarki.  Einu sinni að reyna það þar sem ég hef oftast verið í sögulegu hámarki!

Annars var rosa gaman í borginni, nenni ekkert að fræða ykkur nánar um það, þetta var bara djammferð og það var því bara djammað og ég fór líka í Bláa lónið.

Og eitt í viðbót, hún móðir mín á afmæli í dag.. til hamingju með það!

Loksins, loksins!

06. september 2007 klukkan 10:07
Nú er komið að því sem ALLIR hafa verið að bíða eftir í sumar, þessi síða hefur hér með verið vakin til lífsins. 

Ég nenni nú ekkert að vera að segja ykkur hvað ég var að gera í sumar held að allir viti það.

Málið er einfaldlega það að ég er að fara út eftir 2 vikur í 2 vikur, til Þýskalands og Sviss, aldrei að vita nema að ég komi við í fleiri löndum, Austurríki og Liechtenstein eru mjög ef ekki meira en líkleg. 
Ég ætla að  reyna að segja frá ævintýrum mínum hérna á blogginu, þar sem ég nenni ekki að koma heim með milljón krónu símareikning eins og síðast, nú eða 18 þúsundSvalur

Það hefur nú hingað til verið saga til næsta bæjar þegar við Eva hittumst og tala nú ekki um síðustu ferð sem var farin til að hitta hana Evu í Köln, sjaldan hlegið eins mikið.

Núna verður ekki flogið með lágfargjalda flugfélagi og lent í Düsseldorf Wezee eins og síðast, 80 km frá þeim stað sem ég hélt að ég væri að lenda á, heldur verið flogið með Icelandair og vonandi ekki lent í miðjum hriðjuverkaárásum í Frankfurt!!
Ætla að stoppa hjá Evu í 4-5 daga og fara svo til Sviss og vera í rétt rúma viku hjá honum Brendan mínum, síðan verður haldið aftur upp til Kölnar og flogið heim frá Frankfurt 3. október.

Þetta er bara svona rétt aðeins til að hita upp. 
Á meðan ég man er best að segja ykkur frá því að ég er einmitt að fara í höfuðborgina um helgina.  Bara aðeins að hita mig upp fyrir stórborgirnar úti í heimi.

Læt fylgja mynd af Brendan sem er sárt saknað og á eftir að drukkna í gjöfum þegar ég loksins hitti hann.

Sætur

Skiljið eftir ykkur slóð eða......Öskrandi

Lok og læs..

21. maí 2007 klukkan 19:14
Búin að setja inn lykilorð! Það er nú aðalega bara vegna þess að ég er bara hætt að blogga. Allavegana í bili.. Nóg að gera í nýrri vinnu.  hehe

Komin heim

09. maí 2007 klukkan 12:20
Ég er komin heim!  Ég er reyndar ekki komin með fasta vinnu, aðeins farin að rifja upp taktana á Hótelinu.

Það var erfitt að kveðja Brendan litla, ég fékk svo email frá Kasja í gær sem sagði mér að lífið væri nú alls ekki dans á rósum.  Brendan grét allann daginn sem ég fór og vildi ekkert vera hjá henni.  Hann er reyndar en svoleiðis og mér líður hræðilega að heyra þetta og langar bara út aftur og ná í hann. 


Hann er svo mikið krútt..

Annars er bara fínt að vera komin í sæluna, mjög rólegt og ég hef lítið gert.  Þarf að skreppa til Reykjavíkur á morgun en reikna með að koma heim aftur með kvöldvélinni. Bara rétt aðeins að kíkja á læknana þarna í borginni.Glottandi

Ég veit svo sem ekkert hvort ég kem til með að halda áfram að blogga.  Á allavegana ekki von á að það verði gert reglulega.

À morgun.

29. apríl 2007 klukkan 17:57
Sìdasta faerslan sem skrifud er i Sviss....

À morgun mun èg fljùga til London, èg kvìd svo rosalega fyrir tvì ad kvedja Brendan!  Tad verdur erfitt, vona af èg verdi nù ekki alveg jafn slaem og tegar èg kvaddi Eydìsi Birtu ì fyrra.
Óákveðinn

Er nànast buin ad pakka, adeins snyrtidotid eftir og svona dòterì sem èg tarf à ad halda à morgun.  Èg mun senda lìka annann kassa med pòsti à morgun tar sem taskan var ordin alltof tung.

Ef tad er tölva à hotelinu ì London er aldrei ad vita nema ad èg làti vita af mèr tar...
og jà, èg verd med nytt nùmer tegar èg kem til landsins og èg hugsa ad èg komi til med ad halda tvì bara, tad er 8656479 (gamla numerid hennar mömmu)

AEtladi bara ad skjòta inn sìdustu faerslunni frà Sviss....

Sjàumst svo à Ìslandi

Sigurbjörg

Prófíll

  • Nafn: Sigurbjörg Hallgrímsdóttir
  • Netfang: jaseika@hotmail.com
  • Staður: Bolungarvík
  • Heimilisfang: Ljósaland 3
  • Atvinna: Fulltrúi-Eimskip
  • Hjúskaparstaða: ledig
  • Um mig: Ung snót sem er ótrúlega skemmtileg, alls ekkert óþolinmóð eða óákveðin, með króníska munnræpu og mörg golden moment.

Myndirnar mínar